Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Það er svo gaman að hann sé að fá viðurkenningu á sínum verkum því eins og er sagt hér í annarri færslu er hann bráðsnjall drengur og hefur margt fram að færa. Fjölskylda hans hér á Flateyri er að deyja úr stolti yfir honum.
![]() |
Góðar hugmyndir verðlaunaðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | 28.9.2008 | 16:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Vinir og fjölskylda | 26.9.2008 | 20:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég fékk úr tveimur verkefnum líka í dag og viti menn ég fékk 10 í báðum frábært eða hvað.
þegar ég kom úr skólanum þá ætlaði ég að þrífa og þvo þvott en ég bara settist niður og svar frekar slopp í maganum þannig að ég er ekki búin að gera neitt í allan dag nema að horfa út í loftið þannig að á morgun verð ég að taka til og þvo þvott því að það er bara að vera eins og svínastía hér það er ótrúlegt miða við að við erum bara tvær í heimili en svona er þetta.Er en frekar svegt yfir bílnum skyftingin er ónýtt og það á eftir að kosta helling af pening að gera við hann .Þannig að ég fer ekki í bæinn um helgina verð að vera heima að læra undir lol próf og svo elda góðan mat . Annars hef ég ekki mikið að segja í dag nema ég er bara hress sakna stelpnanna minna og Snorra alveg rosalega mikið . Góðir hálsar hafið það gott þanga til næst.
Vinir og fjölskylda | 25.9.2008 | 21:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þessi dagur er búin að vera alveg frábær er búin að fá úr tveimur verkefnum í lol annað var 9,08 og hitt 9,7 og ég er að deyja úr montni hef bara aldrei fengið annað eins og ég sem var svo stressuð yfir þessu öllu en þetta er alveg geggjað.Það rignir bara alla daga ég gæfi bara farið út með sjampó brúsann og þvegið mér. Ég er svo pirruð yfir því hvað er ógeðslega dýrt að fljúga suður því að ég ætlaði að fara að hitta teyngdason minn hann Atla en það verður ekki neitt úr því í þetta skipti verð að gera það næst og vera bara í anda hjá honum þegar hann fer að veita verðlaunin með Ólafi forseta þetta er voða spennó finnst mér. Er að vona að hún Helga sé ekki hætt að blogga því að mér finnst svo gaman að lesa hjá henni hvað er að gerast úti hjá þeim. Ég er líka alltaf að bíða eftir að Birgitta setji inn nýjar myndir . Annars er bara rólegt hjá mér núna bara verið að þvo þvott svo þarf ég að skúra. Hann Krummi er svo skítugur líka að ég þarf að baða hann það er ekki neitt voðalega gaman að gera það,en ekki getur hann gert það sjálfur ótrúlegt eins og hann er nú skarpur hundur. Anna María fékk líka 7,8 í stærðfræði könnun og það er alveg frábært til lukku rúsínan mín. Kallinn var til kl 4 í dag í landi vildi að hann hafi verið hér hjá mér þannig að ég hefði getað knúsað hann en það er svona gott að hafa síma seigi ekki annað.
Bíllinn er en á verkstæði vona bara að ég heyri frá þeim bráðum veit að hann er öruglega í klessu geggjað gaman er alltaf svo nísk þegar ég þarf að vera að borga viðhald á bíl.
Vinir og fjölskylda | 24.9.2008 | 17:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég er búin að vera gera verkefni í lol og það er bara alltaf að verða erviðara með hverjum deigi veit hreinlega ekki hvort við eigum eftir að nota eitthvað af þessu en mákona mín hún Valla þurfti að taka einn áfanga í tónmennt þegar hún lærði sjúkraliðan fyrir mörgum árum og ekki þarf maður að nota það en hún má nú eiga það að hún getur sungið og öllum þykir gaman að heyra hennar fallegu saungröd En já skólinn það má nú segja að kerlurnar sem eru með mér eru alltaf í stuði og það bara bjargar svo miklu fyrir mig veit ekki hvar ég væri án þeirra. Hildur vinkona mín á afmæli í dag til hamingju með það vildi að ég væri hjá henni í öllum kræsingunum sem eru þar á borði í dag.
Kallinn er að koma í land á morgun en ekki hér heldur í Reykjavíkinni eins og alltaf þetta er að verða sannkallað síma hjónaband hvar værum við ef við ættum ekki síma þá væri bara ömurlegt að lifa með sjómanni ,hvað haldi þið kæru vinir?
Stelpurnar mínar úti í löndum eru bara hressar eins og alltaf það er ótrúlegt hvað þær eru stundum eins og þegar þær voru litlar geta ekki alveg komist að samkomu lagi en þær elska nú hvor aðra og þá er allt í lægi því að þær finna flöt á öllu sem kemur upp.
Ég og Anna horfðum á dans þáttinn á stöð 2 í gær kveldi það var rosalega gaman Anna sprakk úr gleði þegar gæinn vann sem hún er búin að halda með allan tíman.
jæja þá seigi þetta bara fyrir vinkonu mína
Vinir og fjölskylda | 23.9.2008 | 21:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Góðan og blessaðan daginn er ekki bara típískur mán í dag vaknaði í morgun snemma til að taka rútuna rigning og rok alveg eðlilegt miða við hvaða dagur er spurði svo hvenær ég gæti komist til baka frá Ísafirði það er kl 3 sagði maðurinn þannig að ég varð að bíða þar frá því kl 13 30 til kl 3 alveg glatað að það sé ekki örari ferðir á milli.Þannig að ég fór á kaffi Edinborg með Ylfu og við fengum okkur súpu og latte og fundum allt að þessu svo að Erik gaf okkur betra kaffi held að hann fari að setja okkur kerlur í straff því að við erum alltaf að kvarta.En í morgun fór ég með henni vinkonu minni til ömmu hennar og afa það var svo notalegt vildi að ég ætti eitt slíkt sett til að fara til það er alveg ómetanlegt að eiga svona gott fólk að.
Ég ætlaði að fara í bæinn um helgina næstu en það verur ekki neitt af því fyrst þessi bíll þurfti endilega að fara að bila núna alveg tíbíst þegar maður ætlar að gera eitthvað skemmtilegt .
Annars er ég bara mjög hress er samt voðalega spennt að vita hvenær kallinn kemur heim í frí vona að það verði fljótlega.Stóru stelpurnar mínar og hinn helmingurinn þeirra eru bara hress og kát.
Vinir og fjölskylda | 22.9.2008 | 16:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vinir og fjölskylda | 21.9.2008 | 21:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þá er ég búin að taka til í hausnum á mér og held að ég verði að reyna að hugsa smá jákvætt því annars endar þetta bara á einn veg. Vaknaði bara snemma var að taka það rólegt og svo fór ég á Ísafjörð að sækja snúlluna hana Önnu við keyptum okkur nammi og gos því að við ætlum að hafa kósý kvöld í kvöld það verður gaman . Það er en þá rigning úti en samt svo gott veður það vesta við þetta er að það er svo erfitt að fara með Krumma út að labba því að hann verður alveg rennandi blautur svo að það eru handklæði við allar dyr þannig að það sé hægt að þurrka honum.
Talaði við Snorra í gær mér fannst hann vera voða dapur hann er búinn að sofa mjög illa út á sjó og er held ég farinn að vilja taka sér frí vona bara að hann verði í fríi þegar hann á afmæli í næsta mánuði því þá er hægt að gera eitthvað skemmtilegt .
Það er búið að vera mikið að læra heima en núna er eins og það sé bara ekki neitt á bara eftir að gera einn kafla í sálfræði þannig að það er bara rólegt hér.
Það er ball á vagninum í kvöld fjallabræður eru að spila verður önuglega fjör þar veit ekki nema að maður kíki aðeins .
en hafi þið það gott kæra fólk sem á eftir að skoða þessa færslu .
Vinir og fjölskylda | 20.9.2008 | 16:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég er en að hugsa um hvernig mér datt í hug að flitja hingað held bara að það sé hægt að flokka það undir stundar geðveiki .
ég sakna allra svo mikið er alveg að flippa hér á þessum stað .
er alveg drepleiðinleg hef ekki neitt skemtilegt að segja .
Vinir og fjölskylda | 19.9.2008 | 16:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég ætla ekki að segja mína frægu setningu núna sem ég er von að byrja allar færslur á sem mér var bent á .Ég fór til hennar Ylfu vinkonu minnar í Bolungarvík þegar það var eiða í skólanum því að hún var komin með svo mikill fráhvörf að vera ekki búin að hitta mig neitt síðan í gær að ég bara varð að fara nei nei jók hjá henni fékk ég kaffi og brauð og lífrænt ræktaðar gulrætur frábært eins og alltaf þegar maður kemur til hennar.
En það er búið að vera frekar rólegt í dag bara verið að leggja sig og borða síðan ég kom úr skólanum hef ekki nennt að gera neitt allur þvotturinn bíður bara eftir að vera þveginn en honum líður ekki neitt illa vonandi.
Snorri kom í land í dag en það var í Reykjavík svo hann var bara þar í faðmi mömmu og pabba sínum gaman hjá þeim, ég er svo þreytt á því að vera með síma hjónaband .En ég hef nú ekki neitt mikið að segja nema jæja þá .Hafi þið góða nótt kæru vinir.
Vinir og fjölskylda | 17.9.2008 | 22:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- 28.3.2009 það er ekki hægt að bara að gleima að blogga þótt það sé gama...
- 4.3.2009 góður dagur
- 16.2.2009 Er að komast í gang aftur
- 17.1.2009 Snjór og brjálað veður
- 14.1.2009 nóg að gera
Færsluflokkar
Mars 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | 31 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar