Helgin mín

Jæja það er bara búið að vera nóg að gera um helgina kláraði að læra og svo var Anna á dansnámskeiði á Ísafirði það var voða gaman að horfa á hana ,það er alveg ótrúlegt hvað krakkar eru fljótir að læra allskyns hluti og svo eru þau ótrúlega liðug ég sæi mig í anda gera þetta allt saman.

Við hjónin fórum á vagninn og þar var hljómsveit sem kemur frá Frakklandi þau spila síkkunartónlist það var gaman að hlusta en ekki voru margir mættir en það skaðaði nú ekki.

 

Annars er bara allt við það sama hér kallinn er reyndar að fara á sjóinn í kvöld,það er ekki neitt voðalega spennandi en þetta er lífið.

Mig hlakkar bara til að takast á við næstu viku í skólanum,ég held bara að það sé að fara ð kvikna ljós og að konan sé að fara að skilja eitthvað hahahahahahahahah.

En ég er að hugsa um að skrifa bara ekki neitt meir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: egvania

Hæ Guðmunda þú bjargar þér í skólanum og gangi þér vel og vonandi áttu góða viku.

Kærleiks kveðja Ásgerður

egvania, 7.9.2008 kl. 17:00

2 identicon

takk fyrir Ásgerður

Guðmunda (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 08:16

3 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Gott að vita af þér í bloggheimi mínum en hvað er annars að frétta af þér

Sendi þér bestu kveðjur og knús

Anna Ragna Alexandersdóttir, 8.9.2008 kl. 12:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband