Þá er lol prófið búið

Ég sit bara hér heima og bíð spennt eftir að vita hvað ég fæ úr lol prófinu ég verð að viðurkenna að ég var nú frekar stressuð í þessu en það kemur í ljós á eftir hvernig mér hefur gengið annars er ég bara að þvo þvott því að það er komið fjall í vaskahúsið þetta er svo skrítið ég sem er alltaf að þvo þessar stelpur mínar eru alltaf að skipta um föt. En ég er bara hress þarf að fara í dag að byrja að lesa undir hjú en ég held að það verði ekki svo mikið mál eða ég vona það. Snorri kemur heim á morgun hlakka ekki neitt smá til þá verður klárað að skreyta og krúttast Grin. Hann Krummi minn var með glaðning í búrinu fyrir mig í morgun ég var alls ekki neitt ánægð veit ekki alveg hvað hann var að hugsa með þetta að vera að skíta svona en hann var voða kátur þegar ég hleifi honum út lá við að hann brosti framan í mig. Ég er búin að kaupa jólagjafir handa Birgittu og Atla skrifa þetta bara svo að hún verði forvitin það er svo gaman . En vitið þið að ég er að hugsa um að breyta út af vananum og ekki að nota jólapappir ég  á svo mikið að mogga blöðum að ég er að hugsa um að nota hann bara vera hagsín en að hafa einhverja borða er þetta ekki bara nokkuð sniðugt ? Afhverju ætti maður að vera að kaupa þennan dýra jólapappír sem er ekki einusinni Íslenskur svo er þetta bara rifið og tætt utanað pökkunum og svo hent algert rugl hvað finnst ykkur ?  Ég var að byrja í vinnunni í gær það var rosalega gaman það er svo sem ekki neitt brjálað að gera en það er svo gaman og fræðandi að vera með eldri borgurum . En ég keypti nóa síríjuskonfekt það er svo mikið af vínflöskum í þessu þannig að það verður nóg af því fyrir hana teingarmömmu þegar hún kemur hingað ég bara get ekki beðið eftir að fá þau í heimsókn mér þykir það svo gaman. En hafið það gott þanga til næst.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Vonandi færð þú gott úr prófunum vina. Gott að geta farið að slaka á kæra.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 2.12.2008 kl. 13:56

2 identicon

Þú ert svo dugleg kæra vinkona

Ég skil bara ekki hvernig ömmustráknum mínum datt þessi vitleysa í hug, en það er alveg brilijant hugmynd að nota moggablöð sem pappír maður hendir þessum jólapappír beint í ruslið þegar það er búið að rífa utan af pakkanum.

Nú styttist í að þú komir í borg óttans varstu búin að panta tíma hjá Guðrúnu?? Bara minna þig á áður en allt verður orðið fullt hjá henni         

kveðja Sædís

Sædís (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 09:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband