Snjór snjór

Ég sit bara hér inn í stofunni minni og er að bíða eftir fari í skólann því að það er verið að setja nýjar bremsur á litlu músina mína en viti menn það er allt orðið í snjó þannig að það er orðið jólalegt hér. Ég var að kíkja á námsskjáinn og ég fékkí námseinkun í sálfræði 7,6 en ég á eftir að taka loka próf í því þannig það þetta er allt í lagi. Ég er bara ánægð með þetta. Er að fara í síðfræði próf á eftir en bara hluta svo í næstu viku byrja loka prófin en það er bara gaman mér finnst ég samt svo nýbyrjuð í skólanum . Annars er ég bara ekki búin að gera neitt skemmtilegt en það er ekki eins og það þurfi alla daga. Er bara orðin spennt fyrir matar boðinu á morgun þetta verður æði. Anna er lasin í dag með eitthvað í maganum er bara heima sefur bara. Snorri á að landa á Ísafirði í næstu viku það verður gaman að sjá hann vildi stundum að hann væri ekki svona mikill sjómaður og að hann færi nú bara að vinna í landi. En ég læt vita hér hvað ég hef fengið í lol hluta prófi sem ég var í í gær en það kemur seinna í dag . Verið hress bless.

jóla hvað

Jæja haldið þið ekki að konan sé bara búin að baka smákökur heilar fimm sortir og elda mat og allar græjur ekki neitt smá dugleg í dag. Svo er bara að fara að læra því að ég ætla að vera búin að skila verkefninu úr síðasta kafla í lol fyrir morgundag . Er með matarboð á föstudag fyrir nokkrar úr skólanum það verður bara stuð svo er ég að´fara sjálf í boð á laugardag þannig að ekki fara nein kg þessa helgi þetta verður bara stuð . En ég er bara hress í dag hef ekki neitt meira að segja bæ bæ hafið það gott .

Dugnaður og ekki neitt annað

Er búin að vera svo dugleg í dag þvoði eldhúsgluggann setti jólagardínur og smá skraut tók til í gestaherberginu þannig að ég er tilbúin að taka á móti þeim sem vilja koma í heimsókn .  Þvotturinn er alveg að fara að minka töluvert talaði við mömmu og pabba á skypinu þau voru hjá Valla bróður það var voða gaman ég vildi að allir væru með skyp þetta er svo gaman að geta bara talað svona . Talaði aðeins við Snorra það er nú ekki neitt brjálað fiskirí en það er allt í lagi . Er búin að plana hvað ég þarf að gera fyrir jólin og það er komið á krítartöfluna þannig að það fari ekki fram hjá mér. Svo er bara skóladagur á morgun sælan búin er að fara í próf á þriðjudag svo á föstudag þannig að það er svo sem nóg að gera en það er alltaf dauður tími inn á milli þannig að þá getur maður gert eitthvað jóla. Ekki get ég sagt að það sé búið að vera neitt spes veður hér í dag en er nú samt að hugsa um að fara út í göngu bara svona til að gera eitthvað annað en að vera hér heima . Ég er mikið búin að vera að hugsa um hann Gumma bróðir í dag og rifja upp góðar minningar en ég sakna hans og það er svo skrítið að oft hugsa ég hvað ég vildi að ég gæti hringt svona bara til að heira röddina hans en svona er þetta maður hugsar líka oft  afkverju maður var ekki í meira sambandi við fólkið sitt og nýtir ekki tíman sem okkur er skaffaður með fólki betur .  En þetta er svona bara það sem ég er að hugsa .Hann Krummi er ekki sáttur við allar þessar jólafíkurur sem eru hér út um allt hann geltir og urrar á þetta drasl ætlar sko ekki að láta þetta dót gera mér neitt ýlt . En hafið það gott þangað til næst.

Róleg helgi

Það er nú bara búið að vera rólegt hjá mér svaf til 12 30 í dag vaknaði við símann minn það var minn heitt elskaði að hringja það var alveg yndislegt  að heira í honum. En ég var bara á náttfötunum fram eftir degi það var bara gott svo fór ég í sturtu því að það er nú víst nauðsyn að baða sig hahahahaha svo skrapp ég í sjoppuna til HELGU  að versla . Svo var bara að fara heim að elda mat fyrir okkur . Er búin að spjalla heilmikið við hana Birgittu mína ég sakna hennar svo mikið . En vitið menn tengdaforeldrar mínir ætla að koma til okkar um jólin og það finnst mér æði það er svo gaman að vera með fólk um jólin . Ég er að fara á morgun að skypurleggja mig með að skreyta og baka og gera jólakort það verður að gera það því að það er ekki hægt að vera bara í eimd og volæði alla daga ég á bara heima hér og get ekki breitt því úr þessu . ´Jæja kæru vinir ég hef ekki neitt að segja frekar en aðra daga .

Slakur dagur

Ég þurfti ekki að fara í skólann fyrr en kl 11 30 það var ferlega næs svaf bara á mínu græna . Svo fór ég að kaupa prentara sem Snorri gefur mér í jólagjöf því að það er það sem mig vantar alveg nauðsynlega. Annars er ég bara búin að vera að hangsa í allan dag fara í kaffi á heilsugæsluna hjá Tobbu og Heiðu hér heima að drekka meira kaffi voða gaman hanga með Helgu eftir að hún var búin að vinna . Anna María er á fundi hjá björgunarsveitinni voða gaman hjá henni . Helga er að fara að fá sér hund hún er alveg sjúk getur ekki beðið eftir þessu . Ég hef ekki neitt að segja er bara að reina eitthvað að kreista upp eins og svo oft áður . Gógó það er nú gaman að þú sért farin að fylgjast með mér hér hafðu það bara gott . Og allir sem koma hingað verið hress bless í kvöld.

það er búið að vera voðalega kalt

Í dag er bara kalt þannig að ég er bara búin að vera inni eftir að ég var búin í skólanum var að taka til og svo að læra það er víst nóg að gera það eru að fara koma loka próf úf maður bara svitnar að hugsa um það en ég er svo dugleg að ég á ekki að vera í neinum vandræðum með það. Búin að tala við Snorra mörgum sinnum í dag sem er bara gott það er alltaf gaman að heyra í honum.  Haldið þið ekki að litla stelpan mín hún Birgitta og hann Atli séu ekki bara búin að trúlofa sig ég segi bara til lukku með þetta krakkar mínir þetta er frábært . Hann Krummi minn er svo duglegur það er eiginlega alveg hætt að koma slys inni mér til mikillar ánægju það er líka svo gott þegar það er ekki rigning því að það er svo leiðinlegt að hafa allt á floti veit ekki nema að það verði bara að setja flísar á allt svo að parketið eyðileggist ekki bara .

Svo er ég að fara að plana það að bjóða stelpunum sem eru með mér í skólanum í mat held að það verði gaman að hittast svona utan skóla. Annars er allt í góðu hér eða það er allavega það sem ég segi . Hafið það gott þangað til á morgun ef ég hef eitthvað að segja þá .


Rigning og rok alla daga

Hér er bara búið að rigna í allan dag það er svo vont veður að það er ekki hægt að vera úti þannig að konan er bara búin að vera inni að læra og auminginn minn hann Krummi getur varla farið út að pissa  því að hann verður svo blautur að það er hægt að skúra með honum þegar hann stígur inn aftur. Snorri er á leiðinni í land í Reykjavík og hann verður þar í fyrramálið það verður gaman hjá honum hann verður öruglega hjá mömmu sinni og pabba .  Annars er ekki neitt í fréttum er bara að fara að byrja í öllum prófum þannig að það verður nóg að gera hjá mér á næstunni það verður nú gott að fara í frí vona bara að ég komist í bæinn um áramót því að mig langar svo að hitta alla. Svo þarf Krummi að fara í klippingu hann er eins og villi hundur þetta er alveg ótrúlegt hvað hann getur verið loðinn. Það er varla hægt að horfa á sjónvarpið það er ekki neitt nema eimd og volaði í hverju orði auðvita er þetta allt leiðinlegt en eru þessar fréttir ekki bara að draga alla lengra niður ég bara spyr? En Sædís það er nú gaman að þú skulir skoða og kommenta hér á síðunni vona að þú hafir það gott og allir þínir. Ég talaði við hann Birgir í dag það var voða gaman hann var bara hress. Mig langar svo að fara að gera eitthvað jóla en ég bara nenni því ekki það vantar einhvernvegin bara alla stemmingu en ég þarf nú samt að fara að gera eitthvað í jólagjafa málum því ekki er hægt að fresta þessu neitt. væri til í að kíkja núna til Láru vinkonu í kaffi en það er svo langt . Ég er nú búin að kveikja á jólasérísunni úti því að það var eitthvað svo mikið myrkur þetta er allt annað. Það er svo skrítið það kemur bara eingin hingað í heimsókn . Ylfa ef þú átt eftir að skoða þetta þá vona ég að þú hafir það gott miða við aðstæður. Elski þið firðin og strjúkið kviðinn . Hér kemur mynd af tengdasyni mínum og henni Ísold Þulu.n696206964 1520664 541[1]

svo kemur myndband af mér og Bigga síðan í sumar á ættarmótinu það var svo gaman.


Ágætis dagur

Jæja þá er ég búin að fá að vita úr loka prófinu sem ég var í í gær sem var verkleg hjúkrun  og viti menn konan fékk 9 sem er alveg æði eða mér finnst það og er að springa úr monti ekki hvarlaði að mér þegar ég var að byrja í skólanum að mér mundi ganga svona vel en ég gef sjálfri mér klapp á bakið .  Það hefur fjölgað hjá Birgittu og Atla þau voru að fá sér kisu sem þau skýrðu Ísold Þulu það er svo þeim líkt ég er alltaf að sjá það og finna hvað ég sakna þeirra rosalega mikið. Hér  á Flateyri er ekki neitt að gerast frekar en fyrri daginn en það er ekki hægt að búast við því heldur .

 Hún Ylfa vinkona mín var að fara norður á Akureyri pabbi hennar er svo veikur og ég vil láta hana vita að þau eru í huga mér á þessum erfiðu tímum knús og kossar frá okkur hér.

 Annars hef ég ekki mikið að segja nema ég er að byrja að vinna 1 des það verður ágætt að prufa að gá hvort ég get verið í vinnu og skóla en ég held að það verði ekki neitt vandarmál eða hvað?

Hún Helga mín er farin að vinna hér í sjoppunni á Flateyri ég hel að henni finnist það bara alveg ágætt .

Ef ég ætti eina ósk þá mundi ég alveg vita hvað ég ætti að gera við hana og það er að geta búið nær fólkinu mínu og vinum mér finnst eins og ég sé á hjarar veraldar ég er bara ekki að skilja hvað var í hausnum á mér þegar mig langaði að fitja hingað það er ekki neitt hér nema nokkrar manneskjur sem mér langar að þekkja og að umgangast . en hér ætla ég að reina að koma mynd inn af Birgittu minni og henni Ísold Þulu.

n696206964 1520670 1933[1]


hér kemur þetta

ritgerð
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

kem þessu ekki inn

þarf aðstoð

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband